Vöruflokkar

Leita að vörum

Óléttunuddnámskeið fyrir verðandi foreldra (1,5 klst) 24.okt 2023 LOKIÐ

Lýsing

Námskeið fyrir verðandi foreldra þar sem makinn lærir að nudda óléttu konuna sína til að létta á verkjum og þreytutilfinningu.

Námskeiðið er 24.október 2023 frá kl.19:30-21:00.

Einungis pláss fyrir 5 pör á hverju námskeiði. Skráningarfrestur er til 21.október 2023.

Kennari er Gunna Húnfjörð heilsunuddari. Námskeiðið fer fram í jógasal Samkenndar Heilsuseturs, Tunguhálsi 19 í Reykjavík. Praktískar upplýsingar verða sendar á þátttakendur nokkrum dögum fyrir námskeið.

Ef fram kemur „ekki til á lager“ er námskeiðið fullbókað og þá hægt að biðja um að fara á biðlista með því að senda póst á gunna@dharmaheilsa.is.

ATH. ÞETTA ER EKKI NÁMSKEIÐ FYRIR ÞÁ SEM ÆTLA AÐ HAFA ATVINNU AF NUDDI.