Lýsing
Skrúbbnudd er frábær viðbótarmeðferð við nuddmeðferðir sem örvar sogæðakerfið og blóðflæði til húðarinnar, fjarlægir dauðar húðfrumur, eykur upptöku húðar á olíum og ilmkjarnaolíum, mýkir og endurnærir húðina. Það virkar vel sem upphitun vefja fyrir allar tegundir af nuddi og eykur til muna áhrif sogæðanudds.
Umsagnir frá fyrra námskeiði:
„Ég var mjög ánægð með námskeiðið! þetta er frábær meðferð ein og sér eða viðbót við aðrar meðferðir sem ég ætla mér hiklaust að nota í mínu starfi. Gunna er mjög skýr og kemur sér beint að efninu sem er góður kostur þegar maður er kennari. Ég get heilshugar mælt með þessu námskeiði!“ Lilja, heilsunuddari.
„Ég sé ekki eftir að hafa mætt á námskeiðið hjá Gunnu sem er bæði hress og skemmtilegur kennari sem kom efninu vel frá sér. Hjá henni lærði ég áhugaverða viðbót við nuddið sem ég mun án efa nýta mér til að bjóða nuddþegum mínum uppá. Mæli sannarlega með!“ Steinþóra, heilsunuddari.
„Skrúbbnuddnámskeiðið var mjög áhugavert og skemmtilegt. Mér finnst þetta frábær viðbót við nuddið, bæði klassíska og sogæðanuddið. En svo er þetta líka frábær meðferð bara ein og sér. Gunna kom efninu mjög vel frá sér. Ég mæli algjörlega með því að fara á þetta flotta námskeið!“ Gunnhildur, heilsunuddari.
Þetta námskeið er eingöngu fyrir heilsunuddara og eru einungis 10 pláss í boði. Kennari er Gunna Húnfjörð, heilsunuddari og snyrtifræðingur.
Námskeiðið fer fram í kennslustofu heilsunuddbrautar í Fjölbraut Ármúla laugardaginn 3.júní 2023 og er ca. 3 klst að lengd.
Verð er 12.500 kr. sem greiðist í síðasta lagi 26.maí, félagar í Félagi íslenskra heilsunuddara geta sótt um endurgreiðslu úr félaginu.
SKRÁNING MEÐ TÖLVUPÓSTI Á GUNNA@DHARMAHEILSA.IS. Takið fram fullt nafn, símanúmer og ártal útskriftar úr nuddnámi.