Lýsing
Skrúbbnudd er frábær viðbótarmeðferð við nuddmeðferðir sem örvar sogæðakerfið og blóðflæði til húðarinnar, fjarlægir dauðar húðfrumur, eykur upptöku húðar á olíum og ilmkjarnaolíum, mýkir og endurnærir húðina.
Umsagnir um námskeiðið:
„Ég var mjög ánægð með námskeiðið! þetta er frábær meðferð ein og sér eða viðbót við aðrar meðferðir sem ég ætla mér hiklaust að nota í mínu starfi. Gunna er mjög skýr og kemur sér beint að efninu sem er góður kostur þegar maður er kennari. Ég get heilshugar mælt með þessu námskeiði!“ Lilja, heilsunuddari.
„Ég sé ekki eftir að hafa mætt á námskeiðið hjá Gunnu sem er bæði hress og skemmtilegur kennari sem kom efninu vel frá sér. Hjá henni lærði ég áhugaverða viðbót við nuddið sem ég mun án efa nýta mér til að bjóða nuddþegum mínum uppá. Mæli sannarlega með!“ Steinþóra, heilsunuddari.
„Skrúbbnuddnámskeiðið var mjög áhugavert og skemmtilegt. Mér finnst þetta frábær viðbót við nuddið, bæði klassíska og sogæðanuddið. En svo er þetta líka frábær meðferð bara ein og sér. Gunna kom efninu mjög vel frá sér. Ég mæli algjörlega með því að fara á þetta flotta námskeið!“ Gunnhildur, heilsunuddari.
Þetta námskeið er eingöngu fyrir heilsunuddara og eru einungis 10 pláss í boði. Kennari er Gunna Húnfjörð, heilsunuddari og snyrtifræðingur.
Námskeiðið fer fram í kennslustofu heilsunuddbrautar í Fjölbraut Ármúla laugardaginn 15. apríl kl. 9:00-12:00. Skráningarfrestur er til 10.apríl 2023.
Ef fram kemur „ekki til á lager“ er námskeiðið fullbókað og þá hægt að biðja um að fara á biðlista með því að senda póst á gunna@dharmaheilsa.is.