Skilmálar
Pantanir
Staðfesting í tölvupósti berst um leið og pöntun er gerð.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Verð eru í íslenskum krónum að meðtöldum 24% virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndarugl. Dharma ehf áskilur sér rétt til að hætta við viðskipti ef rangt verð eða röng mynd er birt í vefverslun, í þeim tilfellum fær kaupandi endurgreitt. Dharma ehf áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara.
Innheimt er sendingargjald ksamkvæmt verðskrá Póstsins og Dropp. Boðið er upp á fría heimsendingu í Mosfellsbæ. Hægt er að sækja vörur í Dharma eftir samkomulagi um tímasetningu. Sendingarkostnaður fellur niður ef pöntun fer yfir 20.000 krónur.
Greiðsla
Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:
Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.
Með millifærslu.
Skilaréttur og vörugalli
Hægt er að skila/skipta vöru allt að 30 dögum eftir að gengið er frá kaupum. Varan þarf að vera heil og ónotuð í upprunalegum umbúðum.
Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er endurgreiðsla á sama formi og greitt var fyrir vöruna. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um gallaða vöru sé að ræða. Ef upp kemur galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og er sendingakostnaður þá greiddur af Dharma ehf eða boðið upp á endurgreiðu sé þess krafist.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Fyrirvari
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.
Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur
Dharma ehf.
580520-0810
Brattholti 4b, 270 Mosfellsbæ (ath. ekki verslun)
Framkvæmdastjóri: Guðrún Húnfjörð
gunna@dharmaheilsa.is
s: 852-7733