Vöruflokkar

Núvitundarkortin „Sekúndur & mínútur“

4.990 kr.

53 kort með stuttum núvitunaræfingum sem styðja við slökun og endurnæringu taugakerfisins

Lýsing

53 kort með stuttum núvitunaræfingum sem styðja við slökun og endurnæringu taugakerfisins. Þú dregur eitt spjald þegar þurfa þykir og henti athöfnin sem þú dregur ekki núna þá dregur þú einfaldlega annað spjald þar til það rétta birtist þér. Sekúndur og mínútur er einnig fullkomin tækifærisgjöf við hvaða tilefni sem er!

Kortin eru hönnuð af Kristjönu Jenný og framleidd og prentuð á Íslandi.

„Sekúndur & mínútur er hugmynd sem kviknaði, dvaldi með mér um stund og varð loks að veruleika. Sjálf hef ég þurft að finna jafnvægi og tengingu við sjálfa mig í daglegu lífi, og það krefst daglegrar áminningar. Taugakerfið er í stöðugu samtali við okkur, flytur okkur nýjustu fréttir af líðan okkar, en þær fréttir skila sér illa nema við stöldrum við og leyfum okkur að finna. Oft á tíðum þurfum við lítið frekar en mikið, stutt frekar en langt og einfalt frekar en flókið. Sekúndur & mínútur er byggt á hugmyndum um sjálfssefjun og jarðtengingu, stuttar athafnir sem geta stuðlað að meiri ró og betri líðan.“
Kristjana Jenný