Lýsing
Djúphreinsir sem inniheldur Bacillicus Ferment ensímið sem er húðflögnunarensím sem losar um efstu lög húðfrumna og slípar þannig húðina. Regluleg notkun 1-2 í viku bætir áferð húðarinnar og húðin verður bæði mýkri og þéttari, mjög gott að nota á undan maska.
Notið eftir hreinsimjólk og andlitsvatn. Berið á þurra og hreina húð andlits, háls og bringu með fingrum eða maskapensli og bíðið í 10 mínútur þar til djúphreinsirinn er þveginn af með rökum bómullarskífum eða þvottapoka.
Virk innihaldsefni:
Glycerin – Einn besti rakagjafi húðarinnar
Allantoin – Örvar heilbrigðan húðvöxt, vinnur gegn öldrun húðar
Bisabolol – Vinnur gegn ertingu og hefur róandi áhrif
Bacillicus Ferment – Húðflögnunarefni úr ensímum. Losar um efri lög húðflagna og slípar húðina, er mildari valkostur við AHA ávaxtasýrur.