Svo lengi lærir sem lifir!
Kennsla í sjálfsnuddi
Ég býð upp á einkatíma í notkun nuddbolta með áherslu á þau svæði sem henta hverjum og einum. Kennslan miðar að því að þú lærir tækni sem þú getur nýtt þér heima og þurfir bara að koma einu sinni í kennslu. Komdu með eigin nuddbolta eða kauptu hjá mér Therapy Ball PLUS tvo nuddbolta saman í neti sem hægt er að nota tvo saman eða einn í einu. Kennsla fyrir einstakling er 30 mín, ef tveir koma saman þá er hún 45 mín.
Einnig er ég með nuddboltatíma 2-3 sinnum í mánuði hjá Metabolic Reykjavík, þar sem teknir eru fyrir mismunandi líkamspartar með nuddboltum og teygjum ásamt djúpslökun í lok hvers tíma. Upplýsingar um áskrift og 2 vikna frípassa hjá Metabolic Reykjavík eru hér.
Nuddkennsla til heimanotkunar
Ég held reglulega námskeið þar sem ég kenni nudd til heimanotkunar. Paranudd-námskeið er fyrir fólk sem vill læra að nudda herðar, háls og höfuð maka síns. Óléttunudd-námskeið er fyrir fólk sem á ólétta konu og vill læra að nudda hana til létta á verkjum og þreytu á meðgöngunni. Námskeiðin fara fram í jógasal Samkenndar Heilsuseturs í Tunguhálsi 19 Reykjavík. Nánari upplýsingar um næstu námskeið eru hér.
Einnig kenni ég ungbarnanudd bæði í einkatímum og mömmuhópum. Tímapantanir í það er hér.
ATH. þessi námskeið eru ekki ætluð fyrir þá sem ætla að hafa atvinnu af nuddi!
Kennsla fyrir heilsunuddara
Ég sinni stöku kennslutímum á Heilsunuddarabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla. Má þar nefna nuddmeðferðir á borð við skrúbbnudd, leiðsögn í stofnun og rekstri nuddstofa og svo sjálfsrækt heilsunuddara.
Að auki held ég reglulega námskeið fyrir útskrifaða heilsunuddara í skrúbbnuddi. Sjá umsagnir neðst á þessari síðu.
Ég býð einnig upp á einkakennslu í t.d. skrúbbnuddi og upprifjun á sogæðanuddi til menntaðra heilsunuddara eftir samkomulagi.
Fyrirlestrar um heilsueflingu
Ég tek að mér að halda fyrirlestra fyrir litla hópa um heilsumál af ýmsu tagi, svo sem:
- Líkamsbeitingu
- Kulnun
- Sykurlausan lífsstíl