Lýsing
Nuddboltar frá Bandvefslosun.is
Nuddboltar úr gúmmí sem gefa gott grip fyrir húðina og hreyfa því við bandvefnum þegar þeir eru notaðir. Boltarnir eru ekki harðir og gefa eftir svo þér líði betur þegar þú nuddar þig með þeim og svo að taugakerfið þitt róist í leiðinni. Hægt er að nota boltana tvo saman í netinu eða einn í einu.
Þessir boltar eru notaðir t.d. upp við vegg fyrir upphandleggi og mjaðmir eða á stól til að nudda aftanverð læri. Tveir saman í neti eru góðir t.d. fyrir mjaðmir og utanverð læri.
Varist að láta sólina skína lengi á nuddbolta því þá geta þeir þornað. Má þvo með mildri sápu og láta standa svo þeir þorni.
Hægt er að sjá ýmsar æfingar hér: https://www.instagram.com/bandvefslosun/
Viljir þú fá sérsniðna leiðsögn í notkun nuddbolta þá bjóðum við upp á tíma í einkakennslu þar sem lærir tækni sérsniðna að þínum þörfum sem þú getur svo haldið áfram að iðka heima.