Vöruflokkar

Paranuddnámskeið 7.mars 2027 (kl.18:00-21:00)

25.900 kr.

Paranuddnámskeið

Lýsing

Námskeið fyrir pör sem vilja læra að nudda hvort annað á herðum, hálsi og höfði. Markmið námskeiðsins er ekki eingöngu að kenna fólki að nudda vel heldur líka að beita sér þannig að fingurnir, og sérstaklega þumlarnir, verði ekki útkeyrðir á nokkrum mínútum.

Námskeiðið er sunnudaginn 7.mars 2027 kl.18:00-21:00 og kostar 25.900 krónur samtals fyrir 2 manneskjur. Einungis pláss fyrir 4 pör á hverju námskeiði.

Námskeiðið fer fram í jógasal Samkenndar Heilsuseturs, Tunguhálsi 19 í Reykjavík. Praktískar upplýsingar verða sendar á þátttakendur nokkrum dögum fyrir námskeið. Kennari er Gunna Húnfjörð heilsunuddari.

Ef fram kemur „ekki til á lager“ er námskeiðið fullbókað og þá hægt að biðja um að fara á biðlista með því að senda póst á gunna@dharmaheilsa.is.

ATH. ÞETTA ER EKKI NÁMSKEIÐ FYRIR ÞÁ SEM ÆTLA AÐ HAFA ATVINNU AF NUDDI.